Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Jólin

Stofnanir og annað

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Po er kominn heim!

21. nóvember 2006 klukkan 19:00
Hallló þið...
Langaði bara svona til að láta fólk vita að Po er kominn heim og er orðinn frískur. Hann þurfti bara smá spítalavist til að jafna sig.

Annars er nú eitthvað lítið að frétta héðan úr litla kofanum. Panda er að fara í næst síðasta prófið sitt á morgun þannig að hann hefur nóg að gera. Ég er hinsvegar að dunda mér við að klára ritgerð sem ég á að skila á fimmtud og svo er maður svona aðeins að hugsa um að byrja að lesa fyrir próf. Ég þarf svo að þrífa í dag hérna heima og langaði svoooo mikið til að geta þrifið og bónað elskuna mína (Po) en það er bara frost úti þannig að það eru líklega engar slöngur úti. Spennandi lesning ekki satt? Svona er líf mitt þessa dagana....

VIð gerðum reyndar nokkuð skemmtilegt á laugardaginn sem varð til þess að við misstum af badmintoninu :( Við fórum í nýju raftækjaverslunina útí Garðabæ, Max og versluðum aðeins þar. Keyptum PS2 á 5þús og svo keyptum við líka sléttujárn og hárblásara, ekki leiðinlegt það. Fyndið samt hvað Íslendingar eru klikkaðir, hélt að það myndu svona milljón manns troðast undir þegar það opnaði, hvað er að fólki?

Jæja, best að halda áfram. Verið góð hvort við annað og svo megið þið líka alveg vera dugleg að kommenta. 33 dagar í jólin!!!!!!! Víjh!!
Ingibjörg Jóhannsdóttir
9 athugasemdir

Frostið bítur í kinnar... og eyru :S

17. nóvember 2006 klukkan 21:26

Það er kalt úti. Það er vetur. Styttist í jólin. Ég elska veturna. Það vantar snjóinn. Hvítt er gott. Hvar er hvíti snjórinn?? Jóóóólin... Hiti, heitt kakó, snjór, jólatré, hamborgarahryggur og aspasúpa, hangikjöt, fjölskylda, vinir, gleði, hamingja, kærleikur... Bara einn mánuður í það.

Jólagjafir. Afhverju getur verið svona erfitt að velja jólagjafir. Þýðir það að maður þekki einstaklinginn ekki nóg? Held ekki. Vona ekki. Jón Ingi hvað á ég að gefa þér?? Veit ekki hvað mig langar í. Jú, Grey's Anatomy sería 1 og 2, æææðislegir þættir. Ein til frásagnar er bók sem eg mun lesa um jólin. Síðan hvenær varð ég svona mikið jólabarn? Veit það ekki, hugsanlega síðan að ég flutti í borgina. Sakna sveitarinnar gríðarlega mikið... Akureyri. Hélt ég myndi aldrei sakna Akureyrar.



Ingibjörg Jóhannsdóttir
2 athugasemdir

Po er veikur aftur :(

16. nóvember 2006 klukkan 20:57

Já, þið heyrðuð það rétt. Po litli, þessi elska, sem er búið að vera krílið mitt svo lengi... er veikur, og það í þriðja skiptið síðan við komum suður. Fyrst rann risa trukkur á annan bíl sem rann á Po (ný búið að laga það, þurfti að skipta um eina hurð og frambretti, rétta hann og sprauta alla hliðina) síðan var skorið á tvö dekk hjá okkur og eitt sprakk þannig að allt í einu var hann bara á einu heilu dekki og síðan núna þá vorum við að keyra og allt í einu finnum við einhverja skrítna lykt. Síðan þegar við stoppum þá ríkur úr húddinu á elskunni og við kíkjum þar og þá sjáum við að olía gusast út um allt þar.

Við fórum síðan með hann á bílaspítalann og þá kom í ljós að við hefðum ekki mátt keyra hann neitt meir því annars hefði getað kviknað í honum.. Jebb, það munaði litlu. Við urðum því tilneydd til að skilja Po eftir þarna fyrir utan en hann kemst samt ekki inn fyrr en 27.nóvember!! Eftir 11 daga!! :(:( Reyndar fáum við Jagúarinn hans pabba hans Jónsa á meðan en ég sakna samt litlu elskunnar minnar, litla Po :(

Þetta var í fréttum helst þennan daginn....

Ingibjörg Jóhannsdóttir
1 athugasemd

Komin heim eða farin að heiman?

13. nóvember 2006 klukkan 04:51
Ég er komin aftur í Kópavoginn. Mikið var þetta yndisleg heimsókn í sveitina. Maður tekur alltaf betur og betur eftir því hvað manni þykir vænt um þennan litla krúttlega bæ - þar er alltaf svo rólegt, svo notalegt og vinalegt. Ekki spillir fyrir að vera hjá mömmu litlu í viku, það bara gerist varla betra.

Þessi heimsókn var viðburðarrík. Við mæðgurnar höfðum mikið að gera og má þar nefna að ég saumaði bútasaumslöber á sófaborðið hérna, ekkert smá krúttó, síðan voru gerð nokkur jólakort, saumuð nokkur útsaumsspor, rammað inn jólagjafir sem mamma gefur og hefur saumað og svona má lengi telja. Mikið var þetta yndisleg vika.. og hún leið ekkert smá hratt! Ég fékk meira að segja að sjá jólasnjó... já þið Reykvíkingar trúið mér varla en ég sá ALVÖRU jólasnjó - mikið hef ég saknað þess. Það eru að koma jól það er alveg greinilegt.

Það sem hinsvegar fylgir þessum árstíma og er því miður ekki eins skemmtilegt og jólin eru einmitt prófin. Ég fer bara í tvö próf eins og áður hefur held ég komið fram og það verður eitthvað föndur að finna nenni í sér til að fara að læra fyrir svoleiðis. Hugurinn á heima á Akureyri..

Þegar ég kom heim þá mætti mér þessi ógeðslega lykt, það hefur haldið áfram að leka inn til okkar og það magnast í raun bara. Múrari á að mæta víst á morgun, en ég veit ekki. Er alveg komin með ógeð af þessari viðbj.. íbúð. Nú vil ég fara að skoða með að setja okkur á biðlista á stúdentagörðum og hjá BN, veit einhver hvað það er langur biðlisti? Ef þið heyrið um einhvern sem vantar góða leigjendur þá erum við réttu aðilarnir Hlæjandi. Langar í góða íbúð þar sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur á hverjum degi...

Jæja.. held þetta sé fínt, langaði bara til að láta vita að ég er á lífi og endurnærð eftir þessa æðislegu helgi. Gott samt að fá að hitta kallinn, hann er alveg magnaður... Unaður, lífið er stundum unaður. Það sem við eigum að hugsa um í dag er hamingja. Við mótum okkur og okkar líf... Akureyri er ofarlega og verður ofarlega í mínum huga um ókomna tíð...

Yfir og út...
Ingibjörg Jóhannsdóttir
1 athugasemd

Rok, rok, rok og aftur rok

05. nóvember 2006 klukkan 20:50

Hver stendur á baki þessu óveðri? OJ... Brjálað rok og ógeð. Ég átti erfitt með að sofa í nótt vegna þessa, ef það er eitthvað sem ég hræðist þá er það rokið...

Annars er bara allt í gúddí hér, eða svona fyrir utan það að loftið lekur meðfram eldhúsljósinuÖskrandi Þetta er ótrúlegt, þessi íbúð er ap hrynja.

VIð buðum svo Gunnsa brósa í mat í gær, konan hans er í London þannig að við ákváðum bara að stela honum í matarboð (lambalæri sem tókst furðu vel hjá mér) og síðan var spilað Catan, snilldar spil. Alltaf gaman að hitta hann Gunna okkar. Fjarvera konu hans varð einnig til þess að ég og Jónsi þurftum að fara ein í Badmintonið og það er vægast hægt að segja að ég hafi ekki verið í mína besta gírnum, hann rústaði mér Skömmustulegur Overall bara fín helgi annars, erum að fara í mat til pabba Jónsa í kvöld og síðan er það bara norðrið í fyrramálið eða þeas ef að þetta helv!"#$$ veður verður orðið eitthvað betra.

Ég nenni ekki að læra... Held ég fari bara að vaska upp eða eitthvað... latur dagur í dag..

Endilega kommentiði :)

Bæj

Ingibjörg Jóhannsdóttir
4 athugasemdir

Ógisslega dugleg

04. nóvember 2006 klukkan 00:39
Föstudagur... Vikan búin úje. Ég er komin í vikufrí og þvílík sæla. Fer síðan norður á mánudaginn og það verður geggjað. Get ímyndað mér að Jónsi verði ánægður því að þá fær hann loksins frí til að læra (ég er svo grimm;)) Annars gengur allt ágætlega, fengum meira að segja sjónvarpið í dag. Erum með 60 stöðvar fyrsta mánuðinn, ekkert smá ruglingslegt.

Ég er loksins komin með brjálað mikinn áhuga á náminu mínu og er virkilega farin að pæla í framhaldinu. Ég er mikið að pæla í að taka mannfræðina til fulls og ekkert aukafag, það eru nefnilega svo gríðarlega mörg valfög sem mig langar til að taka. Ég er meira að segja komin með hugmynd að BA rannsókn (Já frekar snemma í því). Síðan er stefnan tekin eitthvað út... Hugsanlega BNA eða UK að taka masterinn í hugsanlega þróunarfræðum, ekkert smá spennó.

Jæja, skal ekki þreyta ykkur á þessu námstuði mínu. Núna er ég bara ein heima, Jónsi er í vísó. Var að borða tortillas... NAMM. Síðan er það bara yndislegt sjónvarp framundan (Já ég veit, á mér ekkert líf). Veit ekki hvað ég get sagt meira.....

Sé ykkur bara seinna....
Ingibjörg Jóhannsdóttir
1 athugasemd

Íslendingar eru hlaðnir fordómum PUNKTUR.

01. nóvember 2006 klukkan 21:14
Ég verð að fá útrás fyrir þessu. Ég get ekki setið á mér lengur. Hvað er að Íslendingum!!!??? Í ljósi umræðna um þessar ógeðslegu nauðganir sem hafa átt sér stað síðustu vikur þá hefur sprottið upp umræða um útlendinga á Íslandi. Fólk fer að sýna hve virkilega þeim er illa við þetta oft svo elskulega fólk. Ég hef verið að hlusta svolítið á Bylgjuna síðustu daga og þetta leynir sér ekki... ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ DÆMA HEILU ÞJÓÐIRNAR ÚT FRÁ NOKKRUM SKEMMDUM EPLUM! Ætlar einhver að halda því fram að á Íslandi búi bara gott fólk og að það sé ekkert slæmt sem Íslendingar geri?? Flest þetta fólk sem er að koma hingað til lands er að leita sér að betra lífi, þetta er fólk sem fer í þau störf hér á landi sem við einfaldlega viljum ekki vinna! Við eigum að vera þeim þakklát en ekki tuða og tuða um að við viljumþetta fólk burt! COMMON ég er PIRRUÐ á því að vera ÍSLENDINGUR... Við erum fordómaþjóð !!!!!!!!!!!
Ingibjörg Jóhannsdóttir
4 athugasemdir

Gilmore girls!!

31. október 2006 klukkan 02:23
Ég veit þið trúið ekki hvað ég er ánægð... Já það er rétt, ég var að panta mér fyrstu 5 seríurnar af Gilmore girls á ebay... Ég vann uppboðið! :D Var að borga og vona svo innilega að þetta eigi eftir að skila sér, sendi þetta reyndar til Bigga til að sleppa við tolla og solleis þannig að ég fæ þetta ekki fyrr en í desember þegar næsta heimsókn til þeirra kemur heim. Úff... yndisleg jól hjá mér JEIJ.

Annars er mest lítið að frétta. Er ein heima í kotinu núna eins og svo oft áður, kallinn í skólanum að læra. Hann er svo að fara í vísó á föstud þannig að ég verð líka ein og yfirgefin þá en hann er nú reyndar eiginlega allltaf kominn heim um 22 eða 23 leytið :) litla hænan mín ;) Svo er kennsluhlé í skólanum alla næstu viku og ég á bókað flug til Akureyrar 6. nóv og kem ekki hingað heim fyrr en 12. nóv þannig að ég mun vera í næstum viku á hótel mömmu, gerist varla betra. Ég trúi ekki að það sé að koma nóvember og prófin að byrja eftir mánuð... Finnst það fáránlegt hvað þetta er fljótt að líða :)

Er ekki bara spurning um að fara að föndra nokkur jólakort núna, ekki mikið annað hægt að gera þar sem að sjónvarpið er ekki lengur komið :)

Endilega verið dugleg að kommenta ;) Adios...
Ingibjörg Jóhannsdóttir
2 athugasemdir

Já...

29. október 2006 klukkan 01:50

Menn eru kannski búnir að gefast upp á því að fylgjast með hérna :) En ...

Það er bara allt gott að frétta af mér og mínum. Erum flutt í Kópavoginn og byrjuð í skóla og eins og kannski flestir vita þá ákvað ég að skella mér í mannfræðina í HÍ og líkar bara svona rosa vel. Það er hægt að segja að sambúðin hafi byrjað brösulega enda hefur ýmislegt gengið á hérna í Mánabrautinni hjá okkur (tvisvar stórflóð, Po búinn að lenda tvisvar í hremmingum, vesen með að fá blöð, síma og adsl og erum ennþá að bíða eftir að fá sjónvarp) en allt er gott sem endar vel :) Stressið hefur reyndar aðeins látið sjá sig en það er bara gangur lífsins :)

Skólinn gengur fínt, styttist reyndar í prófin en ég er svo heppin að ég fer bara í tvö próf og það er 13 og 21 des þannig að ég missi af fimmtugs afmælinu hennar mömmsu minnar sem er einmitt 13 des og svo missi ég af útskriftinni hennar Valdísar vinkonu sem er líka alveg ömurlegt :( En svona er þetta víst bara...
Eins og áður kom fram þá er maður svona gríðarlega heppin alltaf :)

Biggi bróðir og kona eru í Edinborg og ég er búin að bóka ferð með mömmu og Gunna og konu til þeirra um páskana að sjá nýja dýrið og það verður eflaust geggjað... Hlakka ekkert smá til að sjá þau. Þau eru alveg mögnuð :)

Svo er nú það sem ég er mest spennt yfir... JÓLIN!!! það styttist óðum í þau og ég var nú einmitt að kaupa efni í jólakortagerð og fer af stað í þeim málum af fullum krafti eftir helgi :D

Annars held ég að þetta sé nóg í bili... Bið að heilsa ykkur öllum og læt vonandi heyra í mér fljótlega aftur :)

Ingibjörg Jóhannsdóttir
3 athugasemdir

Köben hér kem ég!!

03. ágúst 2006 klukkan 20:10
Það er komið að stóru stundinni... Köben eftir nokkra klukkutima. Eftir tveggja daga veikindi þá virðist ég vera að ná mér, eina sem angrar mig núna er hálsbólga en það er ekkert sem að smá sól og ylur í Köben lagar ekki :D Þvílík gleði, þetta verður æði. Erum búin að bóka skoðunarferð til Svíþjóðar sem verður án nokkurs vafa mögnuð, þar er farið til Helsingborg, Lund og Malmö... Skemmtilegt þar sem ég hef aldrei komið til Svíþjóðar áður. Gvuð hvað ég á líka eftir að missa mig í verslun... H&M.. þarf ég að segja eitthvað meira? ;)

Ætla bara aðhafa þetta stutt núna... Fara og klára að pakka. Hafið það bara sem allra best um versló og við hittumst hress fljótlega.

BÆJ!!

Köben!!


Strikið!

Ingibjörg Jóhannsdóttir
5 athugasemdir